Kosy bambus lak 200x200x40 cm Mocca

Upplifðu einstaka mýkt og þægindi með koddaverum úr silkimjúku Bamboo Lyocell-efni með 400 þráða þéttleika. Fínofinn vefnaðurinn gefur koddaverunum einstaklega slétta, mjúka og svala viðkomu sem skapar notalega lúxustilfinningu, nótt eftir nótt.

Vörunúmer 2606200200 Flokkur:
Lýsing

Bamboo Lyocell er þekkt fyrir góða öndun, rakastjórnun og svalandi eiginleika. Efnið er silkimjúkt, slétt og notalega svalt viðkomu og veitir einstök þægindi þegar lagst er í rúmið. Það hjálpar til við að draga í sig raka og flytja hann frá líkamanum, sem stuðlar að þurrara og þægilegra svefnumhverfi alla nóttina. Lakið hentar því sérstaklega vel þeim sem eiga það til að hitna eða svitna á nóttunni.

Silkimjúk áferðin er jafnframt mild við húðina. Slétt yfirborðið dregur úr núningi og veitir notalega tilfinningu við hverja snertingu, sem gerir lakið að góðum valkosti fyrir þá sem vilja leggja áherslu á mýkt og þægindi.

Vandaður 400 þráða vefnaður sameinar einstaka mýkt, glæsilega áferð og lúxustilfinningu sem gerir hverja nótt að notalegri svefnupplifun.

OEKO-TEX® vottun sem staðfestir að þær hafi verið prófaðar með tilliti til skaðlegra efna og uppfylli strangar kröfur um öryggi textílvara.

Þvottaleiðbeiningar

Til að varðveita mýkt, gæði og náttúrulegan glans bambusefnisins er mikilvægt að þvo það af varúð.

  • Þvottur: Þvoið við 30-40°C á þvottakerfi fyrir viðkvæman þvott, bambus, ull eða silki.

  • Þvottaefni: Notið milt, fljótandi þvottaefni sem hentar viðkvæmum efnum, svo sem ull, silki eða bambus.

  • Forðist: Mýkingarerfni, þvottakodda, ilmperlur og sterk bleikiefni.

  • Þurrkun: Mælt er með loftþurrkun, en einnig má þurrka við mjög lágan hita.

  • Straujun: Ef þörf þykir þá er oft nóg að úða örlitlu vatni yfir bambusefnið og leyfa því að sléttast á náttúrlegan hátt, án þess að nota straujárn

Athugið: Bambusefni getur minnkað lítillega við þvott. Sterk þvottaefni og ilmefni geta einnig haft áhrif á náttúrulegan glans efnisins. Með réttri umhirðu helst efnið mjúkt og fallegt lengur.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 200cm x B: 200cm x H: 40cm