Kare Tasty borðstofustóll

Tasty borðstofustóllinn er á snúningsfæti, úr mjúku Boucle áklæði með sessu úr sléttri leðuráferð sem tryggir bæði stílhreint útlit og einstaka vellíðan.

Vörunúmer 70246 Flokkur:
Lýsing

Með nútímalegri hönnun og hámarks þægindum er Tasty snúningsstóllinn frábær inn í borðstofuna, á skrifstofuna eða sem aukastóll inn í stofu.

Þægileg hönnun – Armpúðar og bólstrað bak styðja við líkamann fyrir hámarks þægindi.
Snúningsgrunnur – Svartmálaðir stálfætur með snúningi fyrir aukinn hreyfanleika.
Stílhreint áklæði – Mjúkt og hlýlegt áklæði í ljósum tónum sem passar við hvaða innréttingarstíl sem er.
Sterkbyggður og endingargóður – Vandað efni og traust smíði sem tryggir langt líf.

Tasty stóllinn er ekki aðeins hagnýtur, heldur líka ótrúlega stílhreinn og fullkominn fyrir þá sem vilja blanda saman notalegri hönnun og nútímalegum töktum. Stóll sem vekur athygli og býður upp á einstaka setupplifun!

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 61cm x B: 63cm x H: 81.5cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.