Kare Molly borðstofustóll m/snúning beige

Þessi fallegi borðstofustóll með snúningi og örmum sameinar bæði einstök þægindi og glæsileika.

Hægt er að sérpanta hann í mörgum áklæðisgerðum.

 

Vörunúmer 70423 Flokkur:
Lýsing

Mjúk bólstrunin tryggir notalega setstöðu og snúningsvirknin veitir meiri sveigjanleika við eldhús- eða borðstofuborðið. Fullkominn stóll fyrir langar kvöldstundir með fjölskyldu og gestum. Tímalaus hönnunin passar fullkomlega við bæði nútímalegt og klassískt rými. Glæsilegt húsgagn við borðstofuborðið sem tryggir hámarks þægindi. Fullkomið fyrir þá sem kunna að meta stílhreint heimili!

180° snúningsvirkni, 87 x 69 x 59,5 cm (H/B/D)
Hið stílhreina, kremlitaða áklæði er ofið úr chenille-garni sem gefur einstaklega mjúka áferð
Vönduð bólstrun úr froðu tryggir þægilega setstöðu
Svarti grindarramminn úr dufthúðuðu stáli og tryggir stöðugleika og góða endingu
Hámarksþyngd er 120 kg, sætishæð 48 cm og hann er afhentur í tveimur pörtum

Varðandi sérpöntun á áklæði skal hafa samband við starfsmann.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 59.5cm x B: 69cm x H: 87cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.