Elegante rúmföt En Bloc 2414-9 140×200

En Bloc rúmfötin eru glæsileg og fáguð með grafísku mynstri sem gefur svefnherberginu nútímalegt og elegant yfirbragð. Breiðar rendurnar birtast í mismunandi tónum sama litar og skapa fallega dýpt og látlausan kontrast.

Vörunúmer 24149140200 Flokkur:
Lýsing

Rúmfötin eru ofin úr hágæða jacquard Mako-satíni. Mynstrið er því ofið inn í efnið í stað þess að vera prentað á yfirborðið, sem gefur því vandað og fágað útlit. Mako-satínið er einstaklega mjúkt og slétt viðkomu og silkimjúkur gljáinn dregur fallega fram mismunandi áferð randanna. Dökkur grái liturinn skapar rólegt og nútímalegt yfirbragð og passar vel við bæði ljósar og dökkar innréttingar. Vandaður rennilás tryggir snyrtilegan frágang og þægilega notkun.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 200cm x B: 140cm x H: 0cm