Elegante rúmföt Milano hvít 2356-0 140×200

Milano rúmfötin eru klassísk og fáguð með látlausri hönnun sem fær aukinn karakter frá fíngerðu rendamynstri. Rendurnar eru ofnar inn í efnið og skapa fallegt samspil glansandi og mattrar áferðar sem gefur rúmfötunum elegant og vandað yfirbragð.

Vörunúmer 2356N0 Flokkur:
Lýsing

Rúmfötin eru úr hágæða Mako-satíni sem er einstaklega mjúkt, slétt og þægilegt viðkomu. Fallegur kantur með útsaumuðum streng setur punktinn yfir i-ið og undirstrikar vandaða hönnun Milano línunnar. Hvíti liturinn er tímalaus og gefur svefnherberginu bjart, hreint og rólegt yfirbragð. Milano hentar því einstaklega vel fyrir þá sem vilja klassísk rúmföt með lúxuslegum smáatriðum.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 200cm x B: 140cm x H: 0cm