Iittala Kivi kertastjaki 6cm calluna

Vörunúmer 1073052 Flokkur:
Lýsing

Nafnið Kivi, sem þýðir „steinn“ á finnsku, vísar til hreinnar og kraftmikillar lögunar stjakans. Kivi er framleiddur úr þykku lituðu gleri sem magnar upp birtu kertaljóssins og skapar mjúka og notalega stemningu á heimilinu. Hver litur er framleiddur samkvæmt sérstakri litauppskrift Iittala og endurspeglar einstaka sérþekkingu fyrirtækisins á lituðu gleri. Calluna liturinn gefur stjakanum hlýtt og fágað yfirbragð sem passar fallega inn í bæði nútímalegar og klassískar innréttingar.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 6cm x B: 6cm x H: 6cm
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.