Iittala Moomin djúp skál 15cm Sniff blue

Ein dáðasta persóna Múmíndals, Sniff Blue eða Snabbi er í aðalhlutverki en sagan að baki myndskreytingunni hefst þegar hús Múmínsnáðans hrynur og Snabbi kemur vini sínum til bjargar. 

Vörunúmer MOO1069397 Flokkur:
Lýsing

Sniff er oft fyrstur til að láta sig dreyma um spennandi uppgötvanir, en jafnframt fyrstur til að verða smeykur þegar hættan nálgast. Hann dreymir um að verða ríkur og frægur og heillast af öllu sem glitrar og skín. Gull, gimsteinar og fjársjóðir vekja sérstaka athygli hans og hann sér gjarnan fyrir sér stórkostleg ævintýri sem leiða hann til frægðar og gæfu.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 15cm x B: 15cm x H: 5.5cm
Vörumerki
Tegund
Vörusafn
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.