Moomin krús Sleep Well

Listakonan Tove Slotte hefur hér endurgert upphaflegu Moomin teikningarnar frá Tove Jansson af mikilli snilld. Bollarnir þola uppvottavél, eru úr postulíni og taka 30 cl. Hæð bollans er 8,1 cm og þvermál hans er 8,3 cm en við haldið er það 11,6 cm.

Vörunúmer 5111051264 Flokkur:
Lýsing

Múmínpabbi flytur með fjölskylduna í yfirgefinn vita á lítilli eyju. Það er myrkur úti þegar þreytta fjölskyldan kemur að landi svo að Múmínpabbi tjaldar á ströndinni þar sem þau eyða fyrstu nóttinni. Múmínmamma sofnar en Múmínpabbi vakir alla nóttina og gætir fjölskyldunnar. Einungis niðurinn frá sjónum og ljóstýran frá olíulampanum veita honum félagsskap. Múmínmamma gleymir að sjá til þess að allt sé í lagi og skilur meira að segja veskið sitt eftir á ströndinni. Þetta er mjög ólíkt henni og því telur Múmínsnáðinn þessa ferð ekki venjulegt ævintýri heldur viðburð sem muni breyta lífi þeirra.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.