Kare Cono sófaborð 70 cm keramik

Þetta glæsilega, rúnaða sófaborð bætir stíl og fágun við hvaða stofu sem er og skapar mjúkt og flæðandi yfirbragð í rýminu. Lögunin nýtir plássið vel og hentar sérstaklega vel með hornsófum eða u-sófum þar sem hún mýkir heildarútlitið.

Vörunúmer 87807 Flokkur:
Lýsing

Borðplatan er úr hvítu keramiki með fallegri gráleitum marmaraáferð sem gefur lúxuslegt og tímalaust yfirbragð. Gljáandi yfirborðið verndar plötuna og gerir hana endingargóða og auðvelda í þrifum. Undirstaðan er keilulaga og skreytt með viðaráferð sem bætir við hlýju og náttúrulegum blæ. Með hentugri hæð er borðið fullkomið fyrir framan sófa eða við hlið uppáhalds hægindastóls, þar sem það þjónar bæði sem praktískur flötur og stílhreinn hönnunarhlutur.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 70cm x B: 70cm x H: 42cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.