Kare Kangaroo boxer stytta 41cm

Skrautstytta sem er skemmtilegur og karakterríkur skrautmunur sem vekur strax athygli á hverju heimili.

Vörunúmer 58681 Flokkur:
Lýsing

Gyllt áferðin gefur styttunni glæsilegt yfirbragð á meðan rauðu boxhanskarnir bæta við húmor og sterkum persónuleika. Styttan nýtur sín einstaklega vel á skenk, hillu, hliðarborði eða öðrum áberandi stað. Hún er tilvalin fyrir þá sem vilja brjóta upp hefðbundnar innréttingar með óvæntum og fjörugum hönnunargrip.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 23cm x B: 25.5cm x H: 40.5cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.