Broste Miro sófaborð m/marmari dökkbrúnn, s/fótur Ø49
Skráðu þig inn til að sjá verð
Fallegt og stílhreint hliðarborð með dökkbrúnni marmaraborðplötu og svörtum, keilulaga fæti. Náttúrulegar æðar í marmaranum gefa borðinu glæsilegt og fágað yfirbragð.
Vörunúmer
71177736
Flokkur: Borð
Lýsing
Dökkbrún marmaraborðplata með fallegum náttúrulegum æðum gefur þessu hliðarborði hlýlegt og glæsilegt útlit. Keilulaga fóturinn er úr svörtu, möttu duftlökkuðu járni og myndar fallega heild með dökkum marmaranum. Borðið hentar vel sem hliðarborð við sófann eða hægindastólinn og kemur einnig vel út með stærra borði úr sömu línu. Stílhrein hönnun og falleg efni gera það að skemmtilegri viðbót við stofuna.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 49cm x B: 49cm x H: 37cm |
|---|
Um vörumerkið
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
