Kare Bill bekkur svartur 140cm

Stílhreinn bekkur með svörtu, mjúku sæti, fallegri hnappabólstrun og grönnum stálfótum. Einföld og vönduð hönnun sem hentar vel í forstofu, stofu eða svefnherbergi.

Vörunúmer 71923 Flokkur:
Lýsing

Glæsilegur og nútímalegur bekkur sem sameinar fallega hönnun og þægindi. Bekkurinn er með svörtu, bólstruðu sæti með fallegri hnappabólstrun og viðarkanti sem gefur honum hlýlegt yfirbragð. Svartir, duftlakkaðir stálfætur skapa skemmtilega andstæðu við sætið og gefa bekknum léttan svip. Áklæðið er úr pólýúretanhúðuðu textílefni sem er auðvelt að þrífa og halda við. Bekkurinn hentar vel í forstofuna, við borðstofuborðið eða við fótagafl rúmsins.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 53.5cm x B: 140cm x H: 40cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.