Kare Bill kollur svartur 52 cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Stílhreinn svartur kollur með mjúku, hnappabólstruðu sæti, fallegum viðarkanti og grönnum svörtum stálfótum. Þægilegur og fallegur kollur sem passar vel inn á heimilið.
Vörunúmer
71925
Flokkur: Stólar
Lýsing
Nútímalegur og glæsilegur kollur sem sameinar þægindi og fallega hönnun. Kollurinn er með mjúku, svörtu sæti með fallegri hnappabólstrun og hlýlegum viðarkanti sem gefur honum fágað yfirbragð. Grannir, svartir stálfætur skapa skemmtilega andstæðu við sætið og gefa kollinum léttan svip. Áklæðið er úr pólýúretanhúðuðu textílefni sem er auðvelt að þrífa og halda við. Kollurinn hentar vel sem aukasæti í stofu, við borðstofuborðið eða í forstofuna.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 42.5cm x B: 52cm x H: 45cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

