Kare Donuts kollur Ø34 cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Skemmtilegur og litríkur kollur í laginu eins og stafli af kleinuhringjum með mismunandi glassúr og skrauti. Falleg og fjörug viðbót við heimilið.
Vörunúmer
70925
Flokkur: Stólar
Lýsing
Litríkur og skemmtilegur kollur sem vekur athygli með óvenjulegri hönnun. Kollurinn er í laginu eins og fjórir kleinuhringir sem staflað hefur verið hverjum ofan á annan, með bleikum, brúnum og hvítum glassúr og litríku skrauti. Hann er úr pólýresíni sem gefur honum sterka og stöðuga byggingu ásamt glansandi yfirborði sem auðvelt er að þrífa. Kollurinn hentar vel í stofuna, barnaherbergið eða forstofuna og getur einnig nýst sem skemmtilegt hliðarborð eða skrautmunur.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 33.7cm x B: 34.7cm x H: 46.5cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

