Kare Popcorn kollur 30×30 cm

Skemmtilegur og litríkur kollur í laginu eins og poppkornspoki. Kollurinn er úr pólýresíni og er falleg og fjörug viðbót við heimilið.

Vörunúmer 70926 Flokkur:
Lýsing

Litríkur og skemmtilegur kollur sem er hannaður í laginu eins og klassískur poppkornspoki, fullur af poppkorni. Rauðar og hvítar rendur ásamt áberandi poppkorni gefa honum fjörugt og skemmtilegt útlit. Kollurinn er úr pólýresíni með sléttu, glansandi yfirborði sem auðvelt er að þrífa. Hann hentar vel í stofuna, sjónvarpsherbergið eða forstofuna og getur einnig nýst sem lítið hliðarborð eða skrautmunur. Skemmtileg hönnun sem setur líflegan svip á rýmið.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 30cm x B: 30.4cm x H: 46.5cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.