Kare Hug Tiger Light barstóll m/tígrisdýramynstur
Skráðu þig inn til að sjá verð
Fallegur barstóll með ljósu tígrisdýramynstri á sæti og baki. Stílhrein hönnun sem gefur heimilinu hlýlegan og flottan svip.
Vörunúmer
71772
Flokkur: Stólar
Lýsing
Glæsilegur barstóll með fallegu tígrisdýramynstri í ljósum beige og brúnum tónum. Stóllinn er með mjúku, bólstruðu sæti og ávölu baki sem veitir góðan stuðning og þægindi. Grannir málmfætur og fóthvíla gefa stólnum létt og stílhreint yfirbragð. Ljósir litirnir og fallega mynstrið gera hann að skemmtilegri viðbót við heimilið. Stóllinn hentar vel við eldhúseyju eða barborð.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 51cm x B: 53cm x H: 107cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

