Kare Luca hliðarborð brúnt 50×55 cm

Fallegt og stílhreint hliðarborð í hlýlegum brúnum viðarlit. Borðið er með hringlaga borðplötu og ávölum, keilulaga fæti sem gefur því fágað útlit.

Vörunúmer 71899 Flokkur:
Lýsing

Luca er fallegt og stílhreint hliðarborð í hlýlegum brúnum viðarlit sem gefur heimilinu notalegan svip. Borðið er með hringlaga borðplötu og breiðum, keilulaga fæti sem skapar skemmtilegt og nútímalegt útlit. Einföld og falleg hönnun gerir það að verkum að borðið passar vel við fjölbreyttan húsgagnastíl. Það hentar vel við hliðina á sófa eða hægindastól og er tilvalið fyrir kaffibollann, bækur eða fallega skrautmuni. Luca er bæði hagnýtt og fallegt borð sem setur hlýlegan og fágaðan svip á stofuna.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 50cm x B: 50cm x H: 55cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.