Kare Luca sófaborð brúnt 140×80 cm

Glæsilegt sófaborð með fallegri hnotuáferð, ávalri borðplötu og þremur sívölum fótum. Hlýleg og nútímaleg hönnun sem gefur stofunni fallegan svip.

Vörunúmer 71897 Flokkur:
Lýsing

Luca er stílhreint og fallegt sófaborð með náttúrulegri hnotuáferð sem gefur heimilinu hlýlegan og fágaðan svip. Borðið er með rúmgóðri, ávalri borðplötu sem hvílir á þremur sívölum fótum og skapar skemmtilegt og nútímalegt útlit. Borðið er úr MDF með ekta hnotuspón sem dregur fram fallegt og náttúrulegt æðamynstur viðarins. Lág hæðin og mjúk form gera borðið að fallegum miðpunkti í stofunni. Það hentar vel fyrir framan sófa eða á milli hægindastóla og býður upp á gott pláss fyrir bækur, kaffibolla og skrautmuni.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 80cm x B: 140cm x H: 35cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.