Kare Arezzo veggspegill gylltur 65(45)x160 cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Glæsilegur veggspegill með gylltum, messinghúðuðum stálramma og fallegu trapisulaga formi. Stílhrein hönnun sem gefur heimilinu hlýlegan og fágaðan svip.
Vörunúmer
87854
Flokkur: Veggmunir
Lýsing
Arezzo er glæsilegur veggspegill sem vekur athygli með fallegu trapisulaga formi sem mjókkar upp á við. Spegillinn er með gylltum, messinghúðuðum stálramma sem gefur honum hlýlegt og fágað yfirbragð. Hátt og mjótt formið gerir spegilinn tilvalinn í forstofuna, svefnherbergið eða fataherbergið þar sem hann er bæði fallegur og hagnýtur. Gyllti ramminn passar vel við fjölbreyttan húsgagnastíl og gefur rýminu glæsilegan svip.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 6cm x B: 65cm x H: 160cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

