Kare Luma borðlampi dökkblár 71 cm

Glæsilegur borðlampi með dökkbláum skermi og skrautlegum fæti í dökkum lit með hlýjum koparlituðum tónum. Lampinn gefur mjúka og notalega birtu og passar vel í stofu eða svefnherbergi.

Vörunúmer 58577 Flokkur:
Lýsing

Luma borðlampinn sameinar fallega liti og skemmtilega áferð sem gefur honum hlýlegt og fágað yfirbragð. Skrautlegur fóturinn er úr terracotta með dökkri áferð og koparlituðum tónum sem skapa fallega andstæðu við dökkbláan skerminn. Skermurinn er úr bómull og dreifir birtunni mjúklega um rýmið. Lampinn kemur vel út á skenk, hliðarborði eða náttborði og er falleg viðbót við bæði stofu og svefnherbergi.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 50cm x B: 50cm x H: 71.5cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.