Kare Perro Sit Colore hundastytta sitjandi 9cm, val um 6 liti

Skemmtilegar og litríkar hundastyttur í sitjandi stöðu. Stytturnar eru með glansandi áferð og koma í sex líflegum litum sem setja fallegan og fjörugan svip á heimilið.

Vörunúmer 58394 Flokkur:
Lýsing

Litríkar hundastyttur sem lífga upp á heimilið með skemmtilegri hönnun og fallegum litum. Stytturnar sýna sitjandi hunda með upprétt eyru og eru með glansandi áferð sem dregur fram smáatriðin. Þær koma í sex líflegum litum og passa vel sem skraut á hillu, skenk eða skrifborð. Stytturnar eru framleiddar úr polyresin og koma fallega út bæði stakar og nokkrar saman. Tilvalin gjöf fyrir hundaunnendur.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 5.5cm x B: 9cm x H: 9cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.