Allar vörur
Broste Vig pottur með loki Ø20,5 Stoneware sv.
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðEldfast mót frá Broste í antíksvörtum lit. Það gerir mikið fyrir matinn að vera borinn fallega fram og Vig línan býður okkur svo sannarlega velkomin að matarborðinu með töffaralegu yfirbragði. Má fara í ofn, uppþvottavél og meira að segja í frystinn!
Breidd / dýpt segir til um ytra þvermál mótsins. Hæðin er heildarhæð frá botni og upp (lokið talið með í hæð).
Broste Nordic Sea krús 25cl
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðNordic matarstellin er ein vinsælasta vara Broste Copenhagen. Útlit Nordic sea er hannað undir áhrifum frá norrænum strandlengjum þaðan sem gráblái liturinn kemur. Stellið er handgert og því hver hlutur sérstakur. Rákirnar eru allar handmálaðar og leirinn er „lifandi“ steinleir sem tekur á sig blæbrigði árstímans þar sem ýmislegt getur haft áhrif á umhverfið; svo sem hitastig, loft og vatn (þótt uppskriftin sé alltaf sú sama).
Jakobasdals Bordo kertastjaki H10,5 cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðBordo er handgerður glerkertastjaki þar sem hvert eintak er einstakt. Jarðlitir í brúnum, gráum og hvítum tónum skapa hlýja og notalega birtu, á meðan lífrænt formið gefur honum fallegt og náttúrulegt yfirbragð. Fullkominn á stofuborðið, í gluggann eða sem hluti af fallegri borðdekkingu.





