Morfeo svefnsófi Globe 94 dökkgrár

Ekki til á lager

Vandaður og veglegur ítalskur svefnsófi. Bak er dregið fram á einfaldan hátt til að opna fjaðrandi stálgrind sem á liggur 18 cm há og vönduð svampdýna (fylgir). Fæst í tveimur gráum tónum. Þægilegur fyrir gestina þína hvort sem þeir sitja eða liggja.

Broste Nordic Coal skál á fótum Ø11×5,5 cm

Ekki til á lager

Skál á fótum í Nordic Coal línunni frá Broste Copenhagen. Í þessari línu fást einnig ýmsar aðrar stærðir og útfærslur af skálum með háum eða lágum brúnum, með fótum eða án.

Nordic matarstellin er ein vinsælasta vara Broste Copenhagen. Útlit Coal er hannað undir áhrifum frá öflum náttúrunnar og hráum grunnefnum jarðar. Stellið er handgert og því hver hlutur sérstakur. Leirinn er „lifandi“ steinleir sem tekur á sig blæbrigði árstímans þar sem ýmislegt getur haft áhrif á umhverfið; svo sem hitastig, loft og vatn (þótt uppskriftin sé alltaf sú sama). Coal stellið blandast sérlega vel með öðrum Broste stellum (t.d. Sand eða Esrum) en er einnig mjög fallegt eitt og sér.