Cervia svefnsófi Brezza Elephant
Skráðu þig inn til að sjá verð
Cervia er glæsilegur 3ja sæta svefnsófi með mjúku yfirbragði. Sófinn er klæddur mjúku, örlítið glansandi gráu áklæði með fallegri áferð, sem gefur honum hlýlegt og vandað útlit. Áferð efnisins grípur birtuna á skemmtilegan hátt og gefur litnum meiri dýpt.
Hátt og vel bólstrað bakið ásamt rúmgóðri setu veitir góð þægindi til daglegrar notkunar. Ávalir armar og mjúk form gefa sófanum notalegt yfirbragð og gera hann að fallegri viðbót við stofu eða gestaherbergi. Cervia leynir jafnframt á sér sem rúmgóður svefnsófi. Þegar þörf er á aukarúmi er svefnaðstaðan einfaldlega opnuð og úr verður 140×195 cm svefnflötur fyrir tvo. Sófinn er búinn 17 cm þykkri dýnu, sem veitir góða tilfinningu og gerir svefnaðstöðuna hentuga fyrir næturgesti. Svefnlausnin er falin inni í sófanum þegar hún er ekki í notkun og því nýtist Cervia sem fallegur og þægilegur sófi dagsdaglega án þess að útlitið gefi mikið til kynna að þar leynist rúm.
| Stærð vöru | L: 100cm x B: 174cm x H: 107cm |
|---|---|
| Tegund | Svefnsófar |
