Iittala Essence gin- og kokteilglös 63cl 2 stk glær

Essence kokteilglösin eru hluti af hinni margverðlaunuðu Essence línu eftir Alfredo Häberli, sem hannaði safnið með það að markmiði að sameina einfaldleika, fjölhæfni og fullkomna drykkjaupplifun.

Vörunúmer 5111066372 Flokkur:
Lýsing

Öll glös í línunni deila sama botni og stilki sem tryggir jafnvægi og samræmt útlit, á meðan lögun hvers glers er sérhönnuð fyrir þann drykk sem það er ætlað. Kokteilglösin einkennast af einstaklega þunnum brúnum og fíngerðum stilk sem gerir þau glæsileg, létt og þægileg í hendi. Rúmgóð skálin er fullkomin fyrir stærri kokteila og dregur fram ilm, bragð og útlit drykkjarins á fallegan hátt. Glösin henta sérstaklega vel fyrir Gin & Tonic, Aperol Spritz og aðra vinsæla kokteila þar sem bæði framsetning og upplifun skipta máli.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
LiturGlær
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.