Iittala Essence hvítvínsglas 33cl 2stk

Essence hvítvínsglösin eru hluti af hinni margverðlaunuðu Essence línu eftir Alfredo Häberli, sem hannaði safnið með áherslu á einfaldleika, fjölhæfni og fullkomna drykkjaupplifun.

Vörunúmer 5111008567 Flokkur:
Lýsing

Öll glös í línunni deila sama botni og stilki, á meðan lögun hvers glers er sérsniðin til að draga fram bestu eiginleika viðkomandi drykkjar. Hvítvínsglösin einkennast af einstaklega þunnum brúnum og háum, fíngerðum stilk sem gerir þau bæði glæsileg og þægileg í hendi. Hreint og einfalt form glersins dregur fram tærleika vínsins og hjálpar til við að opna ilm og bragð á sem bestan hátt.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
LiturGlær
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.