Iittala Essence kampavínsglas 21cl 2stk linen

Í tilefni af 25 ára afmæli Essence línunnar kemur þetta glæsilega freyðivínsglas í fallegum Linen-lit fyrir haust og vetur 2026. Um er að ræða sérstaka árstíðarútgáfu sem verður aðeins fáanleg í takmarkaðan tíma.

Vörunúmer 1086659 Flokkur:
Lýsing

Hinn mjúki og jarðbundni Linen-litur gefur glasinu fágað og hlýlegt yfirbragð og fer einstaklega vel með kampavíni, Crémant og öðrum freyðivínum. Fullkomið glas fyrir hátíðleg tilefni, góðar stundir og þegar einfaldlega er ástæða til að skála. Essence línan er hönnuð af Alfredo Häberli og sameinar minimalíska hönnun, falleg hlutföll og einstaklega gott jafnvægi. Þunnur glasbarminn gerir hverja sopa létta og fágaða.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 8.2cm x B: 8.2cm x H: 23cm
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.