Iittala Essence kampavínsglas 21cl 2stk

Essence kampavínsglösin eru hluti af hinni margverðlaunuðu Essence línu eftir Alfredo Häberli, sem hannaði safnið með það að markmiði að sameina einfaldleika, fjölhæfni og fullkomna drykkjaupplifun.

Vörunúmer 5111008576 Flokkur:
Lýsing

Öll glös í línunni deila sama botni og stilki sem tryggir jafnvægi og samræmt útlit, á meðan lögun hvers glers er sérhönnuð til að draga fram bestu eiginleika viðkomandi drykkjar. Kampavínsglösin einkennast af einstaklega þunnum brúnum og fíngerðum stilk sem gerir þau glæsileg, létt og þægileg í hendi. Há og mjó skálin hjálpar til við að halda drykknum köldum lengur og varðveitir hina einkennandi freyðingu kampavíns og annarra freyðivína.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
LiturGlær
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.