Iittala Essence kokteilglas 31cl 2stk linen
Skráðu þig inn til að sjá verð
Í tilefni af 25 ára afmæli Essence línunnar kemur þetta glæsilega kokteilglas í fallegum Linen-lit fyrir haust og vetur 2026. Þetta er sérstök árstíðarútgáfa sem verður aðeins fáanleg í takmarkaðan tíma.
Vörunúmer
1086658
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Hinn mjúki og jarðbundni Linen-litur gefur glasinu nútímalegt og fágað yfirbragð. Glasið hentar einstaklega vel fyrir kokteila, óáfenga kokteila og freyðivín, en er einnig skemmtileg leið til að bera fram eftirrétti á fallegan hátt. Essence línan er hönnuð af Alfredo Häberli og er þekkt fyrir minimalíska hönnun, falleg hlutföll og einstaklega gott jafnvægi. Þunnur glasbarminn fullkomnar upplifunina og gerir glasið jafn fallegt í notkun og það er á borðinu.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 9.9cm x B: 9.9cm x H: 17.8cm |
|---|
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi.
Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.
