Iittala Essence kokteilglas 31cl 2stk

Essence kokteilskálin er hluti af hinni margverðlaunuðu Essence línu eftir Alfredo Häberli, sem hannaði safnið með það að markmiði að einfalda heim drykkjaglasa án þess að fórna virkni eða upplifun.

Vörunúmer 5111009143 Flokkur:
Lýsing

Öll glös í línunni deila sama botni og stilki sem tryggir fullkomið jafnvægi og samræmt útlit, á meðan lögun hvers glers er sérhönnuð til að draga fram bestu eiginleika drykkjarins. Kokteilskálin einkennist af einstaklega þunnum brúnum og fíngerðum stilk sem gerir hana bæði glæsilega og þægilega í hendi. Breið og opin skálin skapar fallega framsetningu og hentar jafnt fyrir klassíska kokteila, kampavín og eftirrétti.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.