Iittala Essence rauðvínsglas 45cl 4stk
Skráðu þig inn til að sjá verð
Essence rauðvínsglösin eru hluti af hinni margverðlaunuðu Essence línu eftir Alfredo Häberli, sem hannaði safnið með það að markmiði að sameina einfaldleika, virkni og fullkomna drykkjaupplifun.
Vörunúmer
5111009141
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Öll glös í línunni deila sama botni og stilki sem tryggir jafnvægi, samræmt útlit og fjölhæfni, á meðan lögun hvers glers er sérhönnuð til að draga fram bestu eiginleika viðkomandi drykkjar. Rauðvínsglösin einkennast af einstaklega þunnum brúnum og háum, fíngerðum stilk sem gerir þau bæði glæsileg og þægileg í hendi. Rúmgóð skálin gefur víninu svigrúm til að anda og hjálpar til við að draga fram lit, ilm og bragð á sem bestan hátt.
Frekari upplýsingar
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Tegund | Glös, Rauðvínsglös, Vínglös |
| Vörulína | Essence |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið, Brúðkaupsgjafir |
| Litur | Glær |
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi.
Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.
