Iittala Essence rauðvínsglasi 45cl 2stk linen

Í tilefni af 25 ára afmæli Essence línunnar kemur þetta vinsæla rauðvínsglas í einstaklega fallegum Linen-lit fyrir haust og vetur 2026. Um er að ræða árstíðarútgáfu sem verður aðeins fáanleg í takmarkaðan tíma.

Vörunúmer 1086760 Flokkur:
Lýsing

Hlýlegur og jarðbundinn Linen-liturinn gefur glasinu fágað yfirbragð og myndar fallega andstæðu við djúpa rauða tóna vínsins. Glasið er því sérstaklega fallegt á haust- og vetrarborðið og skapar notalega stemningu við kertaljós og góðar stundir. Essence línan er hönnuð af Alfredo Häberli og einkennist af nútímalegu, tímalausu útliti og einstaklega góðu jafnvægi. Þunnur glasbarminn gerir drykkjarupplifunina mjúka og fágaða.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 8.2cm x B: 8.2cm x H: 23cm
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.