Iittala Essence vatnsglas 35cl 2 stk glær
Skráðu þig inn til að sjá verð
Essence vatnsglösin eru hluti af hinni margverðlaunuðu Essence línu eftir Alfredo Häberli, sem hannaði safnið með áherslu á einfaldleika, fjölhæfni og framúrskarandi notagildi.
Vörunúmer
5111008565
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Öll glös í línunni deila sömu hönnunarhugmynd þar sem jafnvægi, þægindi og fallegt form fara saman og skapa tímalausa heild. Þessi glæsilegu glös einkennast af hreinum línum og nútímalegu yfirbragði sem passar við hvaða borðhald sem er. Fjölhæf hönnunin gerir þau fullkomin fyrir vatn, safa, vín eða aðra drykki, hvort sem um er að ræða hversdagslegar máltíðir eða sérstök tilefni.
Frekari upplýsingar
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Tegund | Glös, Vatnsglös |
| Vörulína | Essence |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið, Brúðkaupsgjafir |
| Litur | Glær |
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi.
Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.
