Iittala Kartio glas 2stk 21cl glært

Kartio glösin eftir Kaj Franck eru sannkölluð táknmynd norrænnar hönnunar. Franck lagði áherslu á að fjarlægja allt óþarfa úr hönnun sinni og skilja aðeins eftir það sem raunverulega skiptir máli.

Vörunúmer 5111008533 Flokkur:
Lýsing

Kartio sameinar fágaða hönnun, fjölhæfni og notagildi. Kaj Franck taldi að hlutirnir fengju sitt raunverulega gildi í gegnum notkunina og því hannaði hann vörur sem væru bæði fallegar og hagnýtar í daglegu lífi. Kartio glösin eru sterk og endingargóð fyrir daglega notkun, á meðan hreint og glæsilegt formið fellur að öllum borðdekkingum. Tæra glerið undirstrikar einfaldleika hönnunarinnar og gerir glösin að sígildri viðbót við hvert heimili.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.