Iittala Kastehelmi diskur 24,8cm glær

Kastehelmi diskurinn er hluti af hinni ástsælu Kastehelmi línu eftir Oiva Toikka, sem skapaði hið einstaka mynstur af upphækkuðum glerdropum í leit að leið til að fela samskeyti í gleri. Útkoman varð eitt þekktasta hönnunarmynstur Norðurlanda, innblásið af döggdropum sem glitra í morgunsólinni.

Vörunúmer 5111007057 Flokkur:
Lýsing

Nafnið Kastehelmi, sem þýðir „döggdropi“ á finnsku, endurspeglar fullkomlega þá fegurð sem einkennir línuna. Glerdroparnir skapa fallegt birtuspil og draga fram náttúrulegan gljáa glersins á einstakan hátt. Diskurinn sameinar fíngert útlit og góða endingu og er fullkominn fyrir aðalrétti, hvort sem um er að ræða hversdagslegar máltíðir eða hátíðleg tilefni. Tæra glerið undirstrikar lit og framsetningu matarins og gerir borðhaldið enn glæsilegra.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
LiturGlær
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.