Iittala Kastehelmi krukka 116x57mm glær

Einstaklega falleg glær glerkrukka, með plastloki, í Kastehelmi línunni. Fallegri leið til að geyma smáhluti eða geyma og bera fram matvæli. Krukkunum má stafla upp. Ø: 116 mm. H: 57 mm. Kemur í tveimur stærðum og nokkrum litum.

Vörunúmer 5111015375 Flokkur:
Lýsing

Glerið í Kastehelmi línunni frá iittala er hannað til að minna á daggardropa á gróðri á sumarmorgni. Kastehelmi krukkan má fara í uppþvottavél en betra er að handþvo lokið til að tryggja betri ending á plastinu. Kastehelmi krukka er dásamleg gjöf.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
LiturGlær
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.