Iittala Kastehelmi skál 1,4ltr glær
Skráðu þig inn til að sjá verð
Kastehelmi skálin sameinar tímalausa hönnun Oiva Toikka og einstaka fegurð glersins. Hið einkennandi mynstur af upphækkuðum glerdropum varð til þegar Toikka leitaði leiða til að fela samskeyti í gleri og hefur síðan orðið eitt þekktasta tákn finnskrar glerhönnunar.
Vörunúmer
5111015297
Flokkur: Borðhald
Lýsing
Innblásturinn kemur frá döggdropum sem glitra í morgunsólinni og skapa fallegt birtuspil í hverju stykki. Tæra glerið fangar og endurkastar ljósi á einstakan hátt og undirstrikar glæsilega framsetningu matar. Rúmgóð stærðin gerir skálina fullkomna fyrir salöt, ávexti, eftirrétti og aðra kalda rétti, hvort sem er við hversdagslegar máltíðir eða hátíðleg tilefni.
Frekari upplýsingar
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Tegund | Skálar |
| Vörulína | Kastehelmi |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið, Brúðkaupsgjafir |
| Litur | Glær |
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi.
Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.
