Iittala Kivi kertastjaki 6cm Linen

Kivi sprittkertastjakinn í Linen lit er falleg hönnunarklassík sem sameinar einfaldleika, litadýpt og tímalausan elegans.

Vörunúmer 1062235 Flokkur:
Lýsing

Stjakinn var hannaður af Heikki Orvola árið 1988 og er eitt þekktasta hönnunarverk Iittala. Nafnið Kivi, sem þýðir „steinn“ á finnsku, vísar til styrks og fegurðar formsins sem undirstrikar einstaka eiginleika litaðs glers. Þegar kveikt er á kerti dreifist ljósið mjúklega í gegnum glerið og skapar hlýja og róandi stemningu. Linen liturinn er mjúkur og náttúrulegur og fellur fallega að fjölbreyttum innréttingastílum. Kivi er jafn glæsilegur einn og sér og í samsetningu með öðrum litum og stærðum úr línunni.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 6cm x B: 6cm x H: 6cm
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.