Iittala Kivi kertastjaki 6cm pine green

Kivi sprittkertastjakinn er ein af þekktustu hönnunarklassíkum Norðurlanda. Hann var hannaður af Heikki Orvola árið 1988 og hefur síðan þá orðið að táknmynd tímalausrar finnskrar glerhönnunar.

Vörunúmer 1075441 Flokkur:
Lýsing

Nafnið Kivi, sem þýðir „steinn“ á finnsku, vísar til hreinnar og kraftmikillar lögunar stjakans. Kivi er framleiddur úr þykku lituðu gleri sem magnar upp birtu kertaljóssins og skapar mjúka og notalega stemningu á heimilinu. Hver litur er framleiddur samkvæmt sérstakri litauppskrift Iittala og endurspeglar einstaka sérþekkingu fyrirtækisins á lituðu gleri.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 6cm x B: 6cm x H: 6cm
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.