Iittala Tools ostahnífur Collective Tools

Collective Tools ostahnífurinn er hluti af hinni margverðlaunuðu Collective Tools línu eftir arkitektinn Antonio Citterio og iðnhönnuðinn Glen Oliver Löw. Línan hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir að sameina framúrskarandi hönnun, notagildi og nýsköpun í tímalausri heild.

Vörunúmer 5111009859 Flokkur:
Lýsing

Hnífurinn er hannaður með hreinum línum og skúlptúrlegu formi sem liggur einstaklega vel í hendi og gerir notkunina þægilega og auðvelda. Burstað ryðfría stálið gefur honum nútímalegt og fágað yfirbragð sem passar jafnt við hversdagslegt og formlegt borðhald. Beitt og vönduð hönnun gerir ostahnífinn hentugan fyrir fjölbreyttar tegundir osta og tryggir mjúkan og nákvæman skurð.

Frekari upplýsingar
UppþvottavélJá
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.