Iittala Tools skeið lítil Collective

Collective Tools lítil framreiðsluskeið er hluti af hinni margverðlaunuðu Collective Tools línu eftir arkitektinn Antonio Citterio og iðnhönnuðinn Glen Oliver Löw. Línan hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir einstaka blöndu af hönnun, notagildi og nýsköpun þar sem hvert verkfæri er hannað til að liggja vel í hendi og vera þægilegt í notkun.

Vörunúmer 5111009844 Flokkur:
Lýsing

Skeiðin einkennist af hreinni og minimalískri hönnun með nettum haus og sterku handfangi sem gerir hana fullkomna fyrir framreiðslu á meðlæti, sósum og smærri réttum. Burstað ryðfría stálið gefur henni fágað og tímalaust yfirbragð sem passar jafnt við hversdagslegt og formlegt borðhald.

Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.