Iittala Tools smjörhnífur Collective Tools

Smjörhnífur í Collective Tools línunni sem Antonio Citterio hannaði fyrir iittala.

Collective Tools áhöldin eru hönnuð með fagurfræði í huga án þess að útlitið taki nokkuð frá notagildinu. Áhöld sem eru fullkomin í nútíma borðhald, hver hlutur hennar er úr algerlega ryðfríu stáli. Hlutirnir virka hvert fyrir sig, sem sett eða í sett saman við það sem þú átt fyrir, en Collective Tools línan er virkilega stílhrein og passar því með flestum hlutum þínum.

Sérhver hlutur er hannaður með skýra sýn á útlit, tilgang og eru áhöldin sérlega þægileg í hönd. 

Nýjum hlutum er bætt við reglulega í Collective Tools línuna svo safnið verður bara betra.

Vörunúmer 5111009856 Flokkur:
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.