Iittala Ultima Thule diskur 25 cm glær

Ultima Thule diskurinn er glæsilegt hönnunarverk eftir Tapio Wirkkala, einn áhrifamesta hönnuð í sögu finnskrar iðnhönnunar. Innblásinn af ísilögðu landslagi Finnlands og hrífandi fegurð norðurslóða skapaði Wirkkala einstakt mynstur sem fangar ásýnd bráðnandi íss og kristallaðrar náttúru.

Vörunúmer 5111025939 Flokkur:
Lýsing

Til að þróa hina einstöku Ultima Thule línu vann Wirkkala í nærri þúsund klukkustundir með glerblásurum Iittala-verksmiðjunnar. Útkoman varð tímalaus hönnun þar sem list, handverk og náttúra mætast í fullkomnu jafnvægi. Diskurinn ber hið einkennandi Ultima Thule mynstur sem endurkastar birtu á fallegan hátt og setur glæsilegan svip á hvaða borð sem er. Hann hentar jafnt fyrir salöt, forrétti, kökur, ávexti eða aðra framreiðslu og fellur vel að bæði hversdagslegum og hátíðlegum tilefnum.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Vörulína
Tegund
Vörusafn
LiturGlær
Um vörumerkið
Iittala er eitt af þekktustu vörumerkjum heims og þarf vart að kynna. Finnska hönnunarfyrirtækið hóf sögu sína árið 1881 í litlu þorpi sem hét Iittala, en fyrirtækið byrjaði sem glerverkstæði. Uppúr árinu 1920 hóf fyrirtækið framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimili með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Í dag er vöruúrval Iittala ákaflega fjölbreytt en vörumerki þeirra telja meðal annars falleg matarstell, vasa, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.