Iittala Ultima Thule glas freyðivín 18cl 2stk
Skráðu þig inn til að sjá verð
Ultima Thule freyðivínsglasið er hluti af hinni goðsagnakenndu Ultima Thule línu eftir Tapio Wirkkala, einn áhrifamesta hönnuð í sögu finnskrar glerlistar. Innblásinn af ís og stórbrotinni náttúru norðurslóða skapaði Wirkkala einstaka hönnun sem braut hefðbundnar reglur glerblásturs og varð síðar táknmynd finnskrar hönnunar.
Til að þróa hið einkennandi yfirborð vann Wirkkala í nærri þúsund klukkustundir með glerblásurum Iittala-verksmiðjunnar. Áferðin minnir á bráðnandi ís og kristallaða náttúru þar sem ljósið leikur um glerið og skapar fallega dýpt og gljáa. Glasið hvílir á ávölum botni sem studdur er af þremur ískenndum toppum sem virðast svífa yfir yfirborðinu. Útkoman er einstök blanda af list, handverki og notagildi sem hefur gert Ultima Thule að einni þekktustu glerlínu Norðurlanda. Línan öðlaðist heimsfrægð þegar Finnair tók hana í notkun á fyrsta farrými sínu á flugleiðinni milli Helsinki og New York. Freðivínsglasið er fullkomið fyrir kampavín, freyðivín og aðra hátíðardrykki þar sem það setur glæsilegan svip á hverja samverustund.
| Vörumerki | Iittala |
|---|---|
| Tegund | Glös, Vínglös |
| Vörulína | Ultima Thule |
| Vörusafn | Allt fyrir borðhaldið, Brúðkaupsgjafir |
| Litur | Glær |
