Kare Bath Lion glermynd 60x80cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Skemmtileg mynd af ljóni í svart-hvítu. Myndin er lagskipt á hertu öryggisgleri sem tryggir bæði endingu og kristaltæra skerpu. Rammalaus hönnun gefur hreint yfirbragð og með krókum á bakhlið er auðvelt að festa myndina á vegg.
Vörunúmer
56273
Flokkur: Veggmunir
Lýsing
Með sniðugri vegglist eins og þessari færðu strax jákvæða stemningu í rýmið. Þessi ljósmyndasamsetning sýnir tignarlegt ljón í óvæntu umhverfi og kallar fram bros hjá öllum sem sjá. Myndin er fullkomin til að hressa upp á gestasalerni eða baðherbergi, en fyrir þá djörfu hentar hún einnig vel í önnur rými heimilisins. Skemmtilegur fókus sem sameinar húmor, list og sterkan karakter.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 0.4cm x B: 60cm x H: 80cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.

