Kare Beverly sófaborð gyllt 133x80cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Stílhreint sófaborð sem heillar með lúxus yfirbragði og fágaðri hönnun. Samspil svarts og antík gulls gefur borðinu glæsilegan karakter sem lyftir rýminu og skapar skemmtilega stemningu.
Vörunúmer
87522
Flokkur: Borð
Lýsing
Borðið er með snúningsvirkni sem gerir það einstaklega hagnýtt í daglegri notkun. Hægt er að snúa stærra borðplötunni yfir þá minni eða út frá henni eftir þörfum, þannig að drykkir, snakk og aðrir hlutir eru alltaf innan seilingar. Borðplöturnar eru úr keramiki með náttúrulegri steináferð sem gefur vandað og endingargott útlit, á meðan undirstaðan úr stáli með púðurhúðuðu yfirborði tryggir stöðugleika og gæði.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 133cm x B: 80cm x H: 41cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
