Kare Beverly sófaborð svart 133x80cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Glæsilegt sófaborð sem fangar athygli með fágaðri og nútímalegri hönnun. Mött svört áferðin ásamt hringlaga formum skapar lúxus yfirbragð sem fellur fullkomlega að stílhreinum rýmum.
Vörunúmer
85504
Flokkur: Borð
Lýsing
Borðið er með snjalla snúningsvirkni sem gerir það einstaklega hagnýtt í daglegri notkun. Hægt er að snúa stærra borðplötunni yfir þá minni eða út frá henni eftir þörfum, þannig að allt sem þarf er alltaf innan seilingar. Borðplöturnar eru úr keramiki með náttúrulegri steináferð sem gefur bæði vandað útlit og góða endingu.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 80cm x B: 133cm x H: 43cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
