Kare Caruso skóskápur m/2+1 hillum cream
Skráðu þig inn til að sjá verð
Frábær skóskápur í hlýum kremlit. Grönn og látlaus hönnunin tekur lítið gólfpláss og hentar því sérstaklega vel í þrengri ganga og minni rými.
Vörunúmer
71998
Flokkur: Hirslur
Lýsing
Caruso skóskápurinn er nettur en með frábært notagildi.
Skápurinn er aðeins 15cm djúpur og er því tilvalinn þar sem pláss er takmakað.
Hann er með 2 fellihólf sem hefur pláss fyrir að minnsta kosti 4 skópör.
Auka skúffa efst hentar svo vel fyrir smáhluti eins og lykla eða heyrnatól.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 15cm x B: 50cm x H: 81.7cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
