Kare Cono borðstofuborð 120 cm keramik
Skráðu þig inn til að sjá verð
Stílhreint og fallegt borðstofuborð með marmara mynsturs borðplötu og viðarklæddum fæti.
Vörunúmer
87809
Flokkur: Borð
Lýsing
Hringlaga borðstofuborð skapa hlýlegt og samveruvænt andrúmsloft þar sem allir sitja jafnt við borðið. Þetta glæsilega borð er sannkallaður lúxusgripur og er fullkomið fyrir notalegar máltíðir og skemmtilegar samverustundir.
• Ø120 × 76 cm – rúmar allt að 6 manneskjur
• Borðplatan er úr gljáðum steinleir með marmaramynstri í hvítu og gráu
• Fóturinn er úr viðarklæddu stáli og er í stílhreinu, keilulaga formi
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 120cm x B: 120cm x H: 76cm |
|---|
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
