Kare Crystal chess taflborð 37x37cm

Glæsilegt taflborð sem sameinar klassískan leik og fágaða hönnun. Stórt taflborðið er með glæsilegri málmáferð og háglansandi taflmenn í gylltum og silfurlituðum tónum sem gefa settinu einstaklega lúxuslegt yfirbragð.

Vörunúmer 58665 Flokkur:
Lýsing

Taflborðið er ekki aðeins tilvalið fyrir skákunnendur heldur nýtur það sín einnig vel sem fallegur skrautmunur á stofuborði, skenk eða skrifborði. Gylltir og silfurlitaðir taflmenn skapa glæsilega andstæðu og gera settið að áberandi hönnunargrip á heimilinu.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 37cm x B: 37cm x H: 9.5cm
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum. Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn. Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.